Færsluflokkur: Bloggar
16.3.2011 | 15:37
Blogg
Í dag á einn af mínum bestu vinum afmæli en ég ætla ekki að óska honum til hamingju því að ég stór efa að hann lesi blogg.
En já í dag fór ég í tölvuna í skólanum og gleymdi að skrá mig útaf facebook. Tóti strákur sem er í stjórninni tók sig til og bjó til event á facebook og bauð 280 manns í afmæli til mín á laugardaginn, það var frekar fyndið en svo addaði hann í kringum 50 ókunnugum manneskjum á facebook. Slæmur leikur og ég þarf að fara að taka til á því við tækifæri.
En aðal fréttin í dag er að besta vinkona mín og blogg sérfræðingurinn Elsa Björk Einarsdóttir var að trúlofa sig í gær! er svo ánægður fyrir hennar hönd enda bráðmyndarlegur og gáfaður drengur sem krækti í hana hann heitir Daníel og er í háskóla :O
Í gær var í svakalega rómantísku stuði og hlustaði á falleg lög allt kvöldið hérna eru tvö njótið vel og verið bless
http://www.youtube.com/watch?v=DFhJUk7LNT0
http://www.youtube.com/watch?v=Urdlvw0SSEc
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.3.2011 | 10:12
Lítið
Sakna Ingeyjar.
En allavega gærdagurinn var fínn. Vaknaði kl 9 og hafði ekki hugmynd hvað ég ætlaði að gera yfir daginn. En svo langaði mig allt í einu að baka, nema að mamma var að fara að vinna og Sævar fór til Steina og ég gerði vöfflur og hefði aldrei getað étið þær allar einn þannig að ég bauð Halla, Kjúlla og Ragga í vöfflur það var mjög fínt hámuðum í okkur dýrindis vöfflur og drykk með og spjölluðum í dágóðann tíma. Svo var sko planið að vera með kósýkvöld með maska og fótabað og góðri mynd en það er ekkert jafn gaman einn þannig að ég fór til Maríu og við horfðum á My best friends girl sem var mjög fyndin!. Og svo gisti ég hjá henni. Sátum uppí rúmi heillengi og spjölluðum og svo sofnaði ég og vá hvað ég var að fatta að ég er glataður að blogga er hættur í dag shit
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.3.2011 | 10:42
Besta blogg landsins ;D
Fann þessa gamla bloggsíðu sem ég var með 2008 er að spá í að halda áfram með hana, trúi ekki að ég skuli hafa munað notendanafnið og lykilorðið haha en þarna hvað er búið að ske síðan 2008
Ég fór aftur til Færeyja í ágúst 2008 og skemmti mér kounglega. Á góða sögu frá Færeyjum, sem ég myndi skrifa hérna en ég veit að mamma á eftir að lesa þetta blogg þannig að ég sleppi því haha :D
Ég fór á Þjóðhátíð 2009 sem var drullu gaman, Eyddi 140.000 kr :S
2010 fór ég til Akureyrar í 80 ára afmæli afa míns. Hann lést 20 febrúar síðastliðinn er en að átta mig á því að þegar ég fer norður næst verður enginn afi á akureyri :S
Ég var á föstu í nokkra mánuði það var yndislegt og svo ekki jafn yndislegt en ég meina thats life
Ég varð 20 ára árið 2010 og fór í ríkið!
Eins og þið sáuð í einni af fyrri færslunum þá keypti ég mér bíl 2008 og var sáttur.......Ég er ekki sáttur lengur haha síðan maí 2008 hefur hann haftrað mikið sem mig langaði að gera helvítis lán.
Ég tók þátt í Hljóðnemanum árið 2009 með félugum mínum við tókum lagið Skólarapp og unnum ekki :(
Ég tók þátt í hljóðnemanum núna 2011 og tók lagið Hjálpum þeim með stelpu sem heitir Sabina við unnum ekki haha en hún vann svo fyrri annað lag sem hún söng
Ég var í skólaþættinum Hnísunni sem er hægt að sjá á www.nfs.is
Ég var með uppistand 24 febrúar síðastliðinn og það gekk mjög vel, var mjög ánægður með það :D
Ég ætla að setja bílinn minn á sölu ef þú hefur áhuga :D lánið stendur í 600.000 greiðslubyrgðin er 41,000 á mánuði ;D
En í dag er ég að spá í að baka og svo ætla ég að hafa dekurkvöld í kvöld :D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.3.2008 | 11:46
?????
ÓKEY voða lítið að ske hérna í mínu einfalda lífi :D en allavega fór ég á árshátíð á þriðjudaginn sem var bara nokkuð gaman en svo eru ég að fara til færeyja eftir 4 daga sem verður öruglega mikið stuð og ég mun taka með mér myndavél og taka nokkrar myndir og settja þær hingað inn með hjálp móður minnar en allavega er ég farinn Vi ses
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.3.2008 | 00:27
margt og mikið :D
Jæja nokkrir hlutir búnir að gerast síðan að ég gerði þessa síðu og
dagur 1 : DAGURINN SEM ÉG STOFNAÐI BLOGGIÐ
Fór á djammið paddys og trix á trix hitti ég engan annan en erp eyvinda, gaf kauða skot og bjór en ég fékk mér bara bjór svo var djammað langt fram eftir nóttu og komið heim um 6 leitið og haldið í háttinn.Sáttur? JÁ
2 fékk mér tattoo og nýjan bíl sáttur? JÁ
3 party í garðinum ´beint úr vinnu í frían bjór :D sáttur? JÁ
annars er ég veikur núna en það stoppaði mig ekki ég og raggi skutluðum manni í rvk í dag og svo komum við heim náðum í björgvin og júllz og fórum aftur í bæínn fórum á McD sem var viðbjóðslegt svo ætluðum við í keilu en nei það var bókað til 11 þannig að við rúntuðum og ætluðum í bíó kl 10 í kringlunni en það vorum bara légilegar myndir þannig að við ákváðum að fara til keflavíkur á rambó mættum á slaginu 10 en þá var ekki rambo í bíó svo ég fór heim og núna sitt ég hérna og hlusta á now you're gone með basshunter
hey´svo er ég að fara til færeyja 17 mars djamm ? JÁ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.2.2008 | 00:58
halló
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)